Skólafundur

Í gær var skólafundur með þeim á BUGL og þremur einstaklingum frá skólanum. Hann gekk bara vel. Þeir á BUGL vildu að hann byrjaði að fara í skólann í heimsókn, hann fer föstudaginn eftir viku, ég hefði viljað að hann færi á morgun, en whatever. Hann tók þessar nýju töflur í gær en hann var svo þreyttur og slappur af þeim að hann hékk valla uppi. Ég hata þessar töflur. Þetta eru aukaverkanir sem geta varið í nokkrar vikur, ég bað um að hann tæki þær á kvöldin svo að hann finni ekki fyrir þreytunni eins mikið á daginn. Það verður reynt í kvöld.

Í gærkvöldi var fjölskyldukvöld á BUGL. Beggi var svo þreyttur af lyfinu að hann gat ekki tekið þátt. Amma hans kom með okkur, og vorum við að mála. Beggi sofnaði um leið og hann kom heim upp úr átta og ég stuttu seinna, ég hafði bara sofið í fjóra tíma um nóttina. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Ég skil vel að þú hatir þessar pillur. Gangi ykkur vel.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 1.3.2007 kl. 21:57

2 Smámynd: Kolla

Ohhh, vona að aukaverkanirnar hverfi fljótt og það virki betur að taka pillurnar á kvöldin

Kolla, 8.3.2007 kl. 19:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband